Dreifbýlistúttan
Myndir frá Bifröst
22.11.2011 18:00:53 / kolly

bókarhöfundurinn minn

Ég má til með að festa það í sessi á þessari síðu að frumburðurinn minn er að gefa út bók núna fyrir jólin - Náttúruleg fegurð - alveg snilldarbók.  Hér eru myndir frá útgáfuhófinu:

http://www.mbl.is/smartland/samkvaemislifid/2011/11/22/geisludu_af_natturulegri_fegurd/

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2011 10:29:07 / kolly

Hugleiðingar um sjálfstæði

Það er mikið að gerast í mínum kolli þessa dagana og ég er hugsanlega að fara að taka stærsta stökkið í breytingum fyrir utan ákvörðunina að fara í nám á sínum tíma.
Annars hefur verið tíðindalítið hjá okkur, vinna, borga skuldir, njóta samvista eins og hægt er o.s.frv. Arndís er flutt á Bifröst með Smárann sinn og ætlar í frumgreinadeildina í haust. Við keyptum okkur íbúð í rvk í upphafi árs en ég er mest ein þar.....allir aðrir eru á Bif :-)  Þetta vor og sumar hefur verið vonbrigði veðurfarslega séð, en þó skást að vera í rvk. maður situr ekki mikið á pallinum hér á Bifröst - ekki komið einn einasti dagur ennþá þar sem mikill norðanvindur ríkir hér.

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.11.2010 21:13:41 / kolly

Heimili í höfuðborginni

Fórum og skoðuðum íbúð í Kópavogi í dag - urðum verulega skotin, þó hún sé á annarri hæð.  Rosa útsýni og vestur svalir - akkúrat það sem mig langar í.  Ýmsir hnökrar á henni en hún situr samt í mér.  Kemur í ljós síðar hvað verður.  Veðrið fallegt í dag - stillt, kalt og eins og best verður á kosið.


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2010 12:38:20 / kolly

All that is necessary for the triumph of evil is that good men do nothing’

Hef hugsað mikið um þessa setningu undanfarið - ekki bara í tengslum við viðhorf kirkjunnar til kynferðisbrotamála innan hennar, heldur í sambandi við þá stöðu sem þjóðin er í vegna hrunsins.  Það er alltaf verið að velta fyrir sér hver sé ástæðan fyrir því að hrunið varð, hver ber ábyrgð o.s.frv.   Ég held að t.d. megininntak rannóknarskýrslu Alþingis kristallist í þessum orðum Edmund Burkes - slæmir hlutir gerast þegar góðir menn gera ekki neitt - ergo= afskiptaleysi.   Það verða alltaf til manneskjur sem fara út á ystu nöf til að ná því fram sem þær vilja - höfuðsyndirnar fylgja manninum um ókomna tíð.
Það er hins vegar hlutverk þeirra sem láta ekki stjórnast af þessum hvötum að lágmarka skaðann eins og hægt er.
Valdstofnanir bera þessa ábyrgð - framkvæmdar-löggjafar og dómsvald -
og svo er það okkar sjálfra - samfélagsins að vera vakandi og reyna að hafa áhrif í uppeldi, kennslu og samskiptum okkar á milli.

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.06.2010 11:19:09 / kolly

Sumarfrí og sól

Ég er komin í sumarfrí, er á 5 degi og búin að fá sól í 3 :-) ekki slæmt.  Rembist mikið við að vera úti og standa undir nafni um að vera Kol-brún og það gengur ágætlega, nema hvað bringan er farin að flagna - enda ekki vön svona miklu D vítamíni.....
Við ætlum að taka því rólega í fríinu, vera á Bif, í Rvk, Njarðvík og á Patró. 
Veðrið í dag er fínt, sól, 15 stiga hiti og lítill vindur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.04.2010 16:55:33 / kolly

Langur tími - ekkert heyrst.

Ég ætla að taka upp á því aftur að skrifa á þetta blogg. Ég vonast auðvitað til þess að þessi síða lifi eitthvað fram í tímann og þá get ég og mínir kíkt á þetta og skoðað hvað á daga okkar hefur drifið undanfarin ár.
Það hefur ýmislegt gerst eftir að ég útskrifaðist úr skólanum haustið 2008. Það varð eitt stykki bankahrun, ég er búin að koma við á þremur vinnustöðum - Saksóknari, Ráðgjafarstofa og núna Íslandsbanki. Svo kláraði ég hdl-inn og er vonandi hætt að mestu í skóla í bili. Eyþór og Sóldís eru ennþá á Bifröst en Arndís er með íbúð í Kópavogi sem ég er í virka daga.   Hvað framtíðin ber í skauti sér er óráðið.

Í dag er opinn dagur á Bifröst en ég félagsskíturinn hef ekki látið sjá mig þar - hef notað tímann í dag til að þvo þvott og þrífa og njóta þess að vera ein heima hjá mér með hléum þó því Eyþór og ´Sóldís skjótast af og til hingað inn og fá sér gott í gogginn.
Veðrið í dag 21 apríl er ágætt, kalt, frost, sól, gola -svona ekta glugga veður.  Ég bíð spennt eftir vorinu:haha:

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2008 10:34:30 / kolly

Gleðileg jól

Hér er minn maður, kominn í gallann, að íhuga með tánum hvernig eigi að gleðja öll góðu börnin á jólum. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 20:31:36 / kolly

seinni fréttir.....

Úff hvað það er langt síðan ég bloggaði - einhver deyfð yfir þeirri deild hjá mér upp á síðkastið, held nú að ég sé ekki ein um að vera dofin þessa dagana8|
En annars er búið að vera nóg að gera, ég var ráðin tímabundið inn til ríkissaksóknara og átti upphaflega að aðstoða Boga við að kortleggja stöðu bankanna og átti sú vinna að klárast fyrir áramót.  Svo fór sem fór, Bogi hætti, en ég hélt áfram og hef verið að aðstoða saksóknara embættisins í þeirra málum -sem sagt á kafi í sakamálum hvers konar og ég hef líka verið að fara með þeim í héraðsdóm og Hæstarétt, til að fylgjast með.
Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt að öllu leyti - starfsfólkið þarna er alveg frábært og það hefur verið gaman að komast inn í þennan heim lögfræðinnar.

Samningurinn hjá ríkissaksóknara rennur út um mán. mót svo það er spurning hvaða tækifæri gefast eftir það - ýmislegt í kortunum en ég segi frá því seinna.

Nú er von á öðru barnabarni í fjölskylduna, nánar tiltekið þann 24. nóvember kl. 9 fyrir hádegi og ég er bókuð í heimsókn kl. 12 þann dag:haha: Hlakka mikið til.
Smári Óliver hreinlega rifnar út þessa dagana og mér sýnist hann helst vilja vera byrjaður að labba og tala ekki seinna en strax !:haha: Algert krútt þessi drengur.
Annars allt fínt að frétta af öllum - Eyþór á Bif og við Sóldís förum þangað mikið um helgar enda ótrúleg hvíld að komast í sveitina.

Ást friðar og hamingju knús á alla.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 23:26:08 / kolly

Baraham Oblincoln


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.10.2008 22:04:52 / kolly

i like to make a handrelief

Vinkona mín sagði mér einu sinni að hún ætlaði ekki að fara á kjörstað og kjósa.....og ég "eipaði" á hana....sagði að maður notaði ALLTAF tækifærið sem manni er gefið með því að geta notað atkvæðið sitt til að hafa áhrif. Mér finnst þetta einn mikilvægasti réttur okkar ..og þeim líka.






» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 23:28:48 / kolly

Klaufi

Þetta er óborganlega fyndið. Wedding Disaster!

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 21:21:45 / kolly

Farin frá Boston

Fengum brottfararleyfi í dag, fljúgum í kvöld heim - mikil tilhlökkun í gangi að komast loksins heim með heilbrigðan strákaling. 
Sjáumst,
Kollý, Arndís og Smári Óliver.

» 6 hafa sagt sína skoðun

04.10.2008 18:25:33 / kolly

vúhú.......

Fengum frábærar fréttir í dag, fáum að útskrifast af sjúkrahúsinu og fara á hótelið í dag - loksins, en Smári braggast vel, er hitalaus og ferskur þannig að við verðum hér á hótelinu fram á mánudag þegar við hittum lækninn hans, Catherine Allen, og þá getum við jafnvel flogið heim á mánudagskvöld - eigum eftir að fá það staðfest samt.
En það er þvílíkur munur að sjá drenginn á s.l. tveimur dögum, hvað hann er orðinn spengilegur og flottur eins og sést :



» 11 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 01:14:06 / kolly

Hlýtt í Boston

Bloggið hennar Arndísar er eitthvað bilað svo ég tek að mér hlutverk fréttaritara um það sem helst gerist yfir daginn.  Smári er að taka við sér, hann vill ekki ennþá drekka beint, en við komum ofan í hann vökva með því að blanda mikið af vökva í matinn hans og þar með fær hann dágóðan skammt yfir daginn, svo fær hann í æð yfir nóttina.  Við fengum mjög sennilega skýringu á því afhverju hann hefur aldrei viljað pela eða snuð og það er líklegast vegna þess að hann þurfti að reyna þó nokkuð á sig við að sjúga úr pela og það hafi verið of erfitt fyrir hann út af hjartanu,  hann gat lítið lagt á sig vegna ástandsins og læknarnir segja að það geti breyst þegar heim kemur.....kannski verður hann bara pela og snuð barn eftir allt saman - hvort sem það er gott eða ekki....
Hann hefur líka verið með smá hita og þess vegna vilja læknarnir hafa hann áfram undir eftirliti þar til hann hverfur. Við verðum því líklega á sjúkrahúsinu fram yfir helgi og komum VONANDI heim í byrjun næstu viku. Að öðru leyti er Smári hress og kátur, bræðir allt starfsfólk hér með spékoppabrosunum sínum og góða skapinu. 

Hér spjallar Smári við afar skrautlega klætt starfsfólkið sem potar og kássast með hann með reglulegu millibili.

Og hér er drengurinn í stuði að spjalla við ömmu sína.


Annars er ég hér upp á hóteli að fylgjast með kappræðum varaforsetaefnanna Joe Biden og Söruh Palin og ég held að það sé almennt meiri spenningur fyrir þessum kappræðum heldur en þegar forsetaefnin sjálf öttu kappi fyrir viku.  Það helgast aðallega af því að fólk er forvitið að sjá hvernig Sarah kemur útúr þessu en eins og ég hef sagt hefur hún í viðtölum algerlega drullað upp á bak (ef við tölum íslensku) og fólk vill sjá hvort hún geti svarað erfiðum spurningum um efnahagsmálin, utanríkisstefnuna, orku og umhverfismál án þess að vera endalaust að tönglast á ímynd sinni um að vera "hocky mom".

Læt aftur vita af líðan Smára á morgun.  Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar, okkur þykir óskaplega vænt um að fá svona falleg orð og hvatningu frá ykkur góða fólki sem lesið þetta blogg.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 58814