Jæja, nú er þessi sjarmör opinberlega kominn í kristinna manna tölu
og amma hans orðinn löffi...útskrift og innskrift lokið í bili.
Honum Smára Óliver virtist svíða það aðeins að vera settur í kjól og lét hressilega vita af því við skírnina að þetta væri nú aðallega ætlað fyrir kvenkynið, en undir lok veislunnar var hann farinn að taka gleði sína á ný, þá annað hvort búinn að gleyma að hann væri í kjól sem hefði passað á mömmu hans í sídd, nú eða hann hafði bara sætt sig við orðinn hlut, búið að festa hann á mynd í kjólnum og svona...svo það var kannski alveg jafn gott að bræða gesti með spékoppabrosum út í eitt